sælir

Jæja þá.  Föstudagskvöldið var rólegt, miðað við önnur föstudagskvöld.  Hvurnig þá spyrjið þið ef til vill.  Jú, einfaldlega vegna þess að ég drakk minna áfengi en gengur og gerist og fór ekki á neitt öldurhús.

Það var ágætt hjá mér enda held ég að ég hafi tekið báða dagana nokkuð oft upp á síðkastið, sem hefur ollið því að mánudagur - miðvikudagur hafi verið erfiðir.  Mig langar að fara á Nasa í kvöld á GusGus en ég þarf þá að fara á nasa milli 22 og 23 og örugglega bíða í röð því maður er að heyra að fáir miðar séu eftir.  Plús það að miðinn kostar tvö og fimm.. SÆLIR!

Haukur bróðir minn er á ferðalagi um S-Ameríku og þar sem hann sagðist vera blogg laus þá ætla ég að vera hinn elskulegi bróðir og blogga bara fyrir hann.  Hann reynir náttúrlega eftir bestu getu að heilla tjeellingarnar og tókst honum að fara í sleik við tyrkneskan gyðingahermann......... sem var kona.  Maður spyr sig kannski hvað slíkur hermaður er að gera í S-Ameríku, kannski þurfti hún að flýja Tyrkland, múslimayfirvöld hafa kannski ekki kært sig um að hafa gyðing í herliði sínu.  En Haukur sagði að hún hefði verið heit, og því hafi yfirvöld látið það vega upp á móti þeirri staðreynd að hún var gyðingur.  Það er sem ég segi, ef þú ert heit gella, þá eru þér allir vegir færir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband